Um Gordon
Námskeið til að takast á við samskiptavandamál
Leysum ágreining og sköpum lausnir
Við höfum öll upplifað þá streitu sem fylgir því að hafa óleyst deilumál meðal
okkar vinnufélaga. Átök sem eru hunsuð eða illa leyst, hverfa ekki - þau valda
fólki vanlíðan og gremju og fólk fer að forðast hvert annað. Áhrifin á fyrirtækið
eru lægri framleiðni, meiri fjarvistir og minni velta.
Vinnustofa sem tekur á vandamálum í samskiptum
Hér lærir þú að átök í samskiptum eru óhjákvæmileg og geta jafnvel verið
afskaplega heilbrigð. Tilvist átaka í samskiptum er ekki vandamálið, heldur
hvernig fundin er lausn á þessum átökum.
Hér lærir þú viðurkennda sex þrepa aðferð til að leysa ágreining og læra að
greina þarfir og hvernig á að finna nýjar meira skapandi lausnir með því að
virkja þáttöku allra í hópnum. Þú munt einnig læra hvernig á að meðhöndla
deilur sem upp koma á milli starfsmanna og hvernig þú getur lagt grunn
að betri samskiptum á vinnustaðnum.
1. Hlaða niður myndlista með upplýsingum um LET samskiptanámskeið
2. Hlaða niður upplýsingum um hugmyndafræði LET
3. Hlaða niður almennum myndlista um GORDON
Þetta læra þátttakendur á LET samskiptanámskeiði:
-
Að bera kennsl á átök og að þau eru óhjákvæmileg og jafnvel heilbrigð.
-
Að tilvist átaka er ekki vandamálið, heldur hvernig þau eru leyst.
-
Hvernig á að hlusta á sjónarmið annarra til að auka skilning
og bæta samskipti. -
Tjá sig um þarfir og vandamál opinskátt og heiðarlega án þess
að kenna einhverjum um eða gagnrýna. -
Nota viðurkennda sex þrepa aðferð til að leysa átök.
-
Finna nýjar skapandi lausnir með þátttöku hópsins.
-
Hvernig á að koma í veg fyrir deilur á vinnustað.
Ávinningur með LET samskiptanámskeiði:
-
Minni tími fer í ágreining og átök milli starfsmanna, sem eykur afköst.
-
Streita minnkar vegna þess að vandamálum eru leyst í stað þess
að hunsa þau eða forðast. -
Hreinskilni eykst vegna þess að starfsfólki finnst auðveldara að ræða
sín vandamál og taka á ágreiningsmálum.


