top of page

LET mannauðslíkanið er vinn/vinn fyrir starfsfólk og vinnuveitendur

  • Nov 11, 2018
  • 2 min read

Updated: May 13, 2023


Flest alvöru Mannauðs líkön í samskiptafærni byggja á ákveðinni aðferðafræði til að móta grunn fyrir betri starfsmenningu, lausnamiðaðan starfskúltúr, aukna samstarfsfærni, meiri framleiðni og eru þannig vinn/vinn verkefni fyrir fyrirtæki/stofnanir og þeirra starfsfólk. Hvar er svo mannauðs líkan? Í Íslenskri nútímamálsorðabók segir að orðið líkan standi fyrir „kerfi fyrir ákveðnar séraðstæður/sérþekkingu sett fram á stærðfræðilegan hátt, reiknilíkan o.þ.h“.

Mannauðs líkan er einmitt kerfi sem byggir á ákveðinni sérþekkingu sem sett er fram í skipulögðu ferli eins og reiknilíkan. Í þetta ferli er búið að raða saman þáttum og aðgerðum sem skilar þátttakendum á leiðarenda með betri stöðu en þeir voru með í upphafi.

Flest mannauðs líkön í samskiptafærni eru einmitt að uppfylla þessi skilyrði um að innihalda ákveðið ferli þar sem starfsfólk í fyrirtækjum og stofnunum fer í gegnum sérhæfða fræðsluþætti og aðgerðir sem saman eiga að skila betri starfsmenningu, lausnamiðuðum starfskúltúr, aukinni samstarfsfærni, en jafnframt meiri framleiðni (eða minni kostnaði) í starfsumhverfinu.

Eru mannauðs líkön ekki bara verkfæri atvinnurekenda til að fá meira út úr starfsfólkinu? Þetta er áhugaverð spurning til að skoða. Mannauðs líkan í þessu formi hér að ofan er að sjálfsögðu umhverfi sem skilar fyrirtæki/stofnun meiri framlegð og/eða minni kostnaði, en er það á kostnað starfsfólksins? Er þetta bara enn eitt námskeiðið eða innrætingin til að þjóna hagsmunum þeirra sem stjórna?

Til að svara þessu er líklega best að skilgreina hvað fyrirtækið/stofnunin fær út úr þessu og hinsvegar hvað starfsmaður fær:

Fyrirtækið

  • Starfsfólk er lengur í starfi.

  • Starfsmenn eru virkari og með meira frumkvæði.

  • Vandamál og átök sem koma upp eru leyst í stað þess að vera hunsuð.

  • Meiri sköpun, betri ákvarðanir og meiri sveigjanleiki og starfsfólk vinnur betur.

  • Minni tími fer í deilumál og meiri tími til að hugsa, skipuleggja og stjórna.

Starfsfólkið

  • Fólk bætir eigin skilvirkni og eflir persónulegan árangur.

  • Fólk lærir hagnýta samskiptafærni til að nota í persónulegu umhverfi.

  • Fólk eflir heilbrigt sjálfstraust og leggur grunn að andlegu jafnvægi.

  • Fólk styrkir sambönd við aðra og tengir sig betur tilfinninalega.

  • Fólk lærir að takast betur á við ágreining í persónulegu umhverfi.

Eins og sést á þessu hér hér að framan, þá er „nei“ svarið við því hvort mannauðs líkön í samskiptafærni snúist um enn eitt tilfellið til að misnota starfsfólkið. Þetta er líkan sem skilar starfsfólki betra starfsumhverfi og leggur grunn að aukinni þátttöku þess í að móta sitt eigið starfsumhverfi. Þetta er í raun samstarf um að skapa betri vinnustað þar sem öllum líður betur.

Ávinningurinn fyrir fyrirtæki/stofun er meiri verðmætasköpun og ávinningur fyrir starfsfólk er að öðlast meiri færni í samskiptum, bæði á vinnustað og í persónulegu umhverfi.

Mannauðs líkön í samskiptafærni eru svo sannarlega vinn/vinn fyrir alla.


Comments


bottom of page